Mói Hrekkjusvín

Author:

Kristín Helga Gunnarsdóttir

Illustrator:
Linda Ólafsdóttir

Publisher:
Mói hrekkjusvín: Kúreki í Arisóna; Mál og menning (Iceland, 2013)
Mói hrekkjusvín: Misskilinn snillingur; Mál og menning (Iceland, 2014)
Mói hrekkjusvín: Landsmót hrekkjusvína; Mál og menning (Iceland, 2015)

Mói hrekkjusvín – Kúreki í Arisóna
Mói hrekkjusvín er eyrnastór götustrákur sem heitir reyndar fullu nafni Marteinn Jörundur Marteinsson. Besti vinur hans er Byssu-Jói, risavaxinn leynikúreki og öflugur verndari. Mói fær óteljandi hugmyndir, flestar frábærar og aðeins örfáar sem eru ekkert sérstakar. Hann reynir að sigla á ísjaka til Ameríku og búa til heimagerð nagladekk. Stundum er svo mikið að gera hjá honum að hann gleymir skólatöskunni í skólanum.

Mói hrekkjusvín – Misskilinn snillingur
Flestir snillingar mannkynssögunnar hafa misskildir. Í raun hefur enginn kunnað að meta þá fyrr en þeir eru löngu dauðir. Það segir pabbi að minnsta kosti. Ég held að ég sé einn af þeim.
Mói hrekkjusvín er misskilinn snillingur. Stundum bjargar hann lífi fólks hinu megin á hnettinum en samt fara allir á taugum þegar hann skrúfar í sundur raftæki eða hristir nokkra gosflöskur. Byssu-Jói, risavaxinn leynikúreki og verndari Móa, er aldrei langt undan, nagar puntstrá, tyggur tóbak og segir: „Ó boj, MÓI!“

Mói hrekkjusvín – Landsmót hrekkjusvína
Einu sinni á ári fá allar mömmur hrekkjusvína á Íslandi nóg af þeim. Þá senda þær villingana sína á landsmót hrekkjusvína við Jötnatjörn. Mömmurnar hvíla sig og hrekkjusvínin læra bænir og góða siði.

Þegar Mói hrekkjusvín, Orri prestsins og Byssu-Jói fara á kreik getur hvað sem er gerst, draugar fara á stjá í kirkjunni, peningar hverfa úr söfnunarbauknum og moldríkir kúrekar gera allt vitlaust í bíó. Allir þrír hlakka til að fara á landsmót hrekkjusvína við Jötnatjörn og á meðan er rólegt í bænum.

Landsmót hrekkjusvína eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur er framhald bókanna Kúreki í Arisóna og Misskilinn snillingur. Allar geyma þær fjórar lygilegar sögur um Móa hrekkjusvín og verndara hans, löngu dauða kúrekann Byssu-Jóa. Linda Ólafsdóttir myndskreytti.